Sumarið 2021 var Fjallaskálinn Hólaskógur endurgerður að innan og utan. Skálinn er 286 fm með svefnpokagistingu fyrir allt að 44 gesti. Góð eldunaraðstaða fyrir gesti er á báðum hæðum.
Skálinn er mjög vel staðsettur við Sprengisand og helstu náttúruperlur Þjórsárdals. Hann stendur við veginn að Háafossi en þangað er um 6 km leið. Þá er um sjö kílómetrar að Gjánni og Stöng frá skálanum.
Fjallaskálinn í Hólaskógi er opinn allt árið um kring. Vinsamlegast pantið tímanlega.
Yfir háönn er skálavörður starfandi í Hólaskógi.
Vinsamlegast hafið samband í gegnum tölvupóst [email protected]
Mjög góð aðstaða er fyrir ferðalanga í Hólaskóg. Þar eru svefnaðstaða fyrir 44 gesti inn í skálanum. Einnig fullbúið eldhús með helluborði, ofni, uppþvottavél og borðbúnaði, salerni og sturtur.
Góður pallur er umhverfis húsið og graslendi þar sem hægt er að tjalda.
Skálinn í Hólaskógi er á tveimur hæðum með svefnpokapláss fyrir 44 gesti. Á neðri hæð eru þrjú herbergi og á efri hæð eru tvær svefnálmur með aðskildum svefnrýmum.