Gisting

Fjallaskálinn í Hólaskógi hefur lengi verið mjög vinsæll fyrir hópa en skálinn liggur vel við ýmsum ferðaleiðum.

Hægt er að taka skálann allan á leigu og svo geta hópar einnig bókað aðra hæðina fyrir sig.

Skálinn tekur alls 44 í gistingu

Hólaskógur herbergi

Neðri hæð

Á neðri hæð eru þrjú svefnrými með kojum fyrir svefnpokagistingu.  Hvert herbergi er með fjórar einstaklingskojur og tvær tvíbreiðar. Hæðin tekur allt að 24 manns í gistingu.

Efri hæð

Á efri hæðinni eru tvö svefnrými, sem stúkuð eru niður í þrjár einingar. Í hvoru svefnrými  er pláss fyrir 40 manns með sex einbreiðar kojur og tvær tvíbreiðar. Alls komast þannig allt að 20 manns á hæðinni.

Aðstaða innanhúss​

Á neðri hæð er rúmgóð setustofa og matsalur. Þar er fullbúið eldhús með ofni, uppþvottavél, ísskáp, helluborði og borðbúnaði. Á neðri hæðinni eru tvær sturtur sem eru sameiginlegar með öllu húsinu og tvö salerni.

Á efri hæðinni er setustofa, matsalur, fullbúið eldhús með ofni, uppþvottavél, ísskáp, helluborði og borðbúnaði. Eitt salerni er á efri hæð. Á efri hæð er hægt að ganga útá svalir úr svefnrýmunum.

Aðstaða utanhúss

Ef hópar sem gista Hólaskóg eru fjölmennari en skálinn rúmar er velkomið að nýta grasflötina við skálann fyrir tjaldvagna/fellihýsi  eða leggja húsbílum fyrir utan. 

Þeir sem gista á flötinni utanhúss deila salernis- og eldhúsaðstöðunni í skálanum með hópnum sem þeir eru í samfloti með. Þjónustugjald er 3400 fyrir hvert tjald/tjaldvagn/fellihýsi/húsbíl.

Vinsamlegast hafið samband í gegnum tölvupóst [email protected]s

Hólaskógur

Sameiginleg aðstaða

Á hvorri hæð er glæsileg aðstaða er fyrir hópa. Rúmgóð setustofa, matsalur, fullbúið eldhús með ofni, uppþvottavél, ísskáp, helluborði og borðbúnaði. Þannig geta tveir hópar ferðalanga verið í húsinu.