
Verðskrá
Verðskrá 2026 – pdf
Verðskrá 2027 – pdf
Skilmálar
Lágmarksbókun miðast við tólf gesti. Gestir koma sjálfir með lak, svefnpoka eða sæng og kodda. Kjósi gestir uppábúin rúm greiðast 9.500 kr. aukalega fyrir hvern gest.
Skálinn í Hólaskógi er á tveimur hæðum með svefnpokapláss fyrir 44 gesti. Á neðri hæð eru þrjú herbergi og á efri hæð eru tvær svefnálmur með aðskildum svefnrýmum. Gestir koma sjálfir með lak, svefnpoka eða sæng og kodda.
Þrif
Gestir eru beðnir að skila skálanum í sama ástandi og þeir tóku við honum og taka með sér allt rusl. Sé aðstöðunni ekki skilað í fullnægjandi ástandi leggst þrifagjald að upphæð 100.000 kr. á heildarverð gistingarinnar. Nánari leiðbeiningar um þrif hanga á veggjum í Hólaskógi.
Greiðslu- og afbókunarskilmálar:
Greiða þarf pöntunina við bókun með greiðslutengli. Ef þú ert með viðskiptareikning hjá Hrauneyjum/Hólaskógi verður bókunin reikningsfærð eftir brottför gesta.
Afbókun:·
- Gistingu má afbóka án endurgjalds allt að 30 dögum fyrir komu.·
- Ef gisting er afbókuð með 15-29 daga fyrirvera þarf að greiða helming af heildarverði.·
- Ef gisting er afbókuð með inna en 14 daga fyrirvara þarf að greiða gistinguna að fullu.