Hópar

Fjallaskálinn í Hólaskógi hefur lengi verið mjög vinsæll fyrir hópa en skálinn liggur vel við ýmsum ferðaleiðum.

Góð aðstaða er fyrir hestahópa í Hólaskógi, s.s. hestagerði, og heysala.  

Hægt er að taka skálann allan á leigu og svo geta hópar einnig bókað aðra hæðina fyrir sig.

Sameiginleg aðstaða

Á hvorri hæð er glæsileg aðstaða er fyrir hópa. Rúmgóð setustofa, matsalur, fullbúið eldhús með ofni, uppþvottavél, ísskáp, helluborði og borðbúnaði. Þannig geta tveir hópar ferðalanga verið í húsinu.